Calendula
Calendula er áhuga“fyritæki“ með nær 26 ára tilraunasögu með jurtir úr Íslenskri náttúru. morgunfrú og mynta.
Calendula er með tilraunasögu frá 1993 með jurtir úr Íslenskri náttúru. Uppúr 2004 hafa einnig komið til lífrænt ræktaðar jurtir úr eigin garði, t.d. Um takmarkaða framleiðslu að ræða, því ekki er meiningin að fara út í stórframleiðslu, heldur búa til lítið í einu með ástúð og umhyggju.
----------
Calendula is a very small home based business, with over 20 years of kitchen coun
Ágúst 2025.
Ef þú hefur áhuga á að fá morgunfrúarsmyrsl hjá mér, þá get ég vippað því upp með frekar skömmum fyrivara.
Ég vil helst selja það alveg ferskt, því þá endist það lengur.
50. ml. krukka selst á kr. 3000.
Ég á nóg til af úðanum góða, sem ég nota sjálf á hverjum degi og hef notað í tæp 23 ár. Hann bjargaði fótunum mínum frá síendurteknum vörtum, sem komu aftur þrátt fyrir fjólubláa efnið sem læknarnir settu á þær.
Með því að nota þennan úða alltaf kvölds og morgna og alltaf við sokkaskipti, auk þess að úða reglulega ofan í skóna mína, hefur þessi ófögnuður alveg látið mig í friði.
Og það sem betra er; ég er aldrei með fótafýlu eða fæ fótsveppi.
Sömuleiðis nota ég úðann til sótthreinsunar á smáskeinur.
Ég á enga úðastúta í augnablikinu en 100 ml. flaska kostar kr. 2300 hjá mér.
Breytt netfang: [email protected]
Enn hef ég þessar vörur til sölu.
21/02/2013
Morgunfrúarsmyrslið er nærandi, græðandi, mýkjandi, gott við exemi og alls konar útbrotum á húðinni. Það hemur sveppasýkingar, m.a. fótsvepp, og er afar milt svo nota má það jafnt á andlit, hendur og á kroppinn. Í morgunfrúarsmyrslinu er kókosolía, ólívuolía, bývax og græðandi jurtir, m.a. morgunfrú og vallhumall .
*Morgunfrúarblóm hafa verið notuð til að varna útbreiðslu krabbameins eftir að æxli hafa verið fjarlægð. (*Úr „Íslenskar Lækningajurtir“ e. Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur)
50 ml. glas kostar 2.000 kr. án sendingargjalds.
21/02/2013
Kæli- og sótthreinsiúðinn hefur gefið góða raun s.l. 10 ár við fótaóeirð (pirringi í fótum) og til sótthreinsunar á smásárum og á bólur. Hann er dásamlega kælandi á lúna og pirraða fótleggi og fætur. (Hann er frábær á ferðalögum og í gönguferðum) Gott er að setja Morgunfrúarmyrslið á fæturna fyrst, því úðinn einn og sér getur þurrkað húðina. Og síðast en ekki síst, er gott að úða ofaní skóna sína annað slagið til að fríska þá upp og drepa ólyktarbakteríurnar þar. Góður maður segir mér að hann úði á hárlaust höfuð sitt og frískist þá allur upp í amstri dagsins, sem er ekki ólíklegt því rósmarín, sem m.a. er í úðanum, hefur upplífgandi áhrif.
50 ml. flaska kostar 1.800 kr. og 100 ml. 2500 kr. en svo leggst sendingargjald ofaná.
27/01/2013
Svona líta Calendula jurtavörurnar út í dag.
Varasalvinn er í 15 ml. krukkum og er mjög græðandi og frískandi. Hann má líka nota á smásár og skeinur og hafa börn þolað hann mjög vel. Varasalvinn inniheldur vaselín.
Hann kostar 800 kr. glasið. (uppf. jan. 2023)
29/07/2011
Svona litu vörurnar út í upphafi, en ég nota ekki lengur þessar umbúðir.
08/01/2011
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
810
