GeoSilica Iceland
GeoSilica framleiðir náttúruleg bætiefni til daglegrar notkunar fyrir endurnýjun líkamans frá toppi til táar.
09/10/2026
Árið 2012 kviknaði hugmyndin að GeoSilica út frá einfaldri spurningu: Getum við nýtt íslenska jarðhitavatnið betur?
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag stöndum við á spennandi tímamótum með uppbyggingu nýrrar starfsemi á Þeistareykjum.
Atvinnumál kvenna og Svanni-lánatryggingasjóður tók skemmtilegt viðtal við Fida Abu Libdeh, stofnanda og forstjóra GeoSilica, þar sem hún segir frá upphafi fyrirtækisins, áskorunum á leiðinni, mikilvægi góðra samstarfsaðila og þeim tækifærum sem fram undan eru.
Við hvetjum ykkur til að lesa þetta áhugaverða viðtal og kynnast betur sögunni á bak við GeoSilica. 💙
👉
Geosilica - frá hugmynd til veruleika GeoSilica er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni byggð á kísilsteinefnum sem unnin eru úr íslensku jarðhitavatni. Fyrirtækið nýtir sér einkaleyfisvarða tækni til að vinna…
06/10/2026
Á dögunum fór fram Hönnunarþing á Húsavík þar sem Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, hélt erindi um það sem gerist þegar jarðvarmi, nýsköpun og hönnun mætast.
Við erum vön að hugsa um jarðvarma fyrst og fremst sem uppsprettu hita og rafmagns - en möguleikarnir ná mun lengra 💡
Hjá GeoSilica fær jarðhitavatnið framhaldslíf. Með rannsóknum, nýsköpun og hátæknilausnum vinnum við verðmæt steinefni úr jarðhitavatni sem annars væru vannýtt og umbreytum þeim í vörur sem rata alla leið til neytenda.
En góð tækni ein og sér er ekki nóg. Hönnun gegnir mikilvægu hlutverki í að brúa bilið á milli vísinda og neytenda - að segja söguna, skapa upplifun og gera flókna tækni að einhverju sem fólk skilur, tengir við og vill nota.
Erindi Fidu var því byggt í kringum áhugaverða spurningu:
Hvað fleira getum við hannað úr jarðvarmanum? 🌏
Takk fyrir okkur, Hraðið miðstöð nýsköpunar og Hönnunarþing og fyrir að skapa vettvang fyrir samtal um hönnun, nýsköpun og nýjar leiðir til að nýta þær einstöku auðlindir sem við búum yfir á Íslandi. 🌋
Á myndinni með Fidu er Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, sem tók einstaklega vel á móti okkur.
Myndband Hraðsins um viðburðinn má sjá hér: https://lnkd.in/eZgCSUzs
29/09/2026
Eins og mörg ykkar vita framleiðum við hjá GeoSilica Iceland fæðubótarefni úr kísli sem unninn er úr íslensku jarðhitavatni – en við höfum ekki látið þar við sitja.
Undanfarin ár höfum við rannsakað, ásamt samstarfsaðilum í Ítalíu, hvernig nýta megi þessa einstöku auðlind á fleiri sviðum, meðal annars í landbúnaði og iðnaði 🌏
Enterprise Europe Network á Íslandi segir frá ferðalagi GeoSilica og REGEOSS-verkefninu í nýrri grein. Við hvetjum ykkur til að lesa hana yfir kaffibollanum.
Við erum stolt af því að taka þátt í verkefni sem opnar ný tækifæri fyrir sjálfbæra nýtingu íslensks jarðhita.
https://een.is/regeoss-verkefnid-opnar-ny-taekifaeri-i-heilsu-landbunadar-og-idnadargeira/
Fida Abu Libdeh RANNÍS
Frá rannsóknarverkefni til alþjóðlegrar nýsköpunar: Saga GeoSilica og REGEOSS verkefnisins - EEN - Iceland Íslenska nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica hefur náð mikilvægum áfanga í þróun sjálfbærrar tækni með þátttöku í Eurostars-verkefninu REGEOSS (Recovery of
RENEW fyrir hár, húð og neglur ✨
Varan er sérstaklega vinsæl meðal kvenna sem upplifa hárlos eða þynningu á hári eftir fæðingu, hjáveituaðgerðir eða aðrar hormónabreytingar.
Hún er einnig vinsæl meðal einstaklinga með Alopecia Areata.
Ekki er ráðlagt að taka vöruna inn á meðgöngu en má nota samhliða brjóstagjöf. 🤍
Aðeins 1msk á dag 💧
21/09/2026
Finnur þú fyrir þreytu, orkuleysi eða að einbeitingin sé ekki alveg upp á sitt besta? 🥱 REFOCUS fyrir hug og orku er vinsæl meðal einstaklinga sem að vilja styðja við hug og orku án örvandi efna eins og koffíns eða orkudrykkja. Varan inniheldur 14mg járn, 15ug D-Vítamín og 100mg kísil 👏
Lestu meira um mikilvægi járns og D-vítamíns og REFOCUS hér:
Þreyta og orkuleysi: Járn og D-vítamín Þreyta, orkuleysi og léleg einbeiting eru eitthvað sem flest okkar kannast við. Svefn, álag, hreyfing og næring hafa auðvitað mikil áhrif á orkuna okkar en vítamín og steinefni skipta líka máli. Tvö mikilvæg næringarefni í því samhengi eru járn og D-vítamín – og þau eru ein...
17/09/2026
Föstudaginn 25.september verður Fida Abu Libdeh með erindi á Hönnunarþingi á Húsavík sem að Hraðið miðstöð nýsköpunar stendur fyrir. Erindið mun fjalla um hvað gerist þegar jarðvarmi, nýsköpun og hönnun mætast 🌱🌍🔥
17/09/2026
"Ég og maðurinn minn höfum tekið REFOCUS bætiefnið í um það bil 2 mánuði og við erum bæði sammála um að við náum að halda betri einbeitingu yfir daginn og eigum auðveldara með að sinna mörgum verkefnum samtímis í vinnunni. Í stuttu máli sagt þá erum við einbeittari að þeim verkefnum sem við erum að vinna að hverju sinni!" - Jonina 💙 REFOCUS er nú á haust tilboði 👏 20% afsláttur þegar keyptar eru 2 vörur eða fleiri með kóðanum "REFOCUS20". Linkur í athugasemd 👇🏽
10/09/2026
🥉 GeoSilica Iceland hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir íslenska nýsköpun!
Við erum ótrúlega stolt að deila því að GeoSilica hlaut BRONZE Recognition á alþjóðlegri nýsköpunarsýningu í Silicon Valley, í samstarfi við IFIA-International Federation of Inventors' Associations - .official
Viðurkenningin tengist einkaleyfi GeoSilica og þeirri nýsköpun sem liggur að baki tækninni okkar GoeStep – að nýta kísil úr jarðhitavatni og skapa úr honum verðmæta vöru.
Sólveig okkar tók við viðurkenningunni fyrir hönd GeoSilica í gær, en við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu á íslenskri hugvitssemi og nýsköpun 💙
Við viljum jafnframt þakka Elinora Inga Sigurdardottir FRSA fyrir að koma GeoSilica á framfæri við IFIA og fyrir hennar mikilvæga starf í þágu íslenskra frumkvöðla.
Frá íslenskri jarðhitaauðlind til alþjóðlegrar viðurkenningar! 🌍
07/09/2026
Takk allir sem að komu við í spjall og stuð á kynningarbás GeoSilica yfir ljósanæturhelgina. Engin önnur en Fida Abu Libdeh stóð vaktina með tveimur kjarnakonum & Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir 🤩 Það var sko aldeilis hlegið 🥳
Það var einnig ótrúlega gaman að sjá áhugann á vörunum og fyrirtækinu frá gestum og gangandi.
REFOCUS stal senunni þessa helgina 💧 Járn, D-vítamín & íslenskur kísill – tilvalin þrenna í einni vöru inn í dimmustu mánuði ársins.
Frábær ljósanæturhelgi afstaðin - þangað til næst ✨
Kísillinn er ekki trend eða tískubóla, heldur lífsstíll 💙
Í tilefni Ljósanætur bjóðum við 20% afslátt af öllum GeoSilica vörum um helgina 3.-6.sept með kóðanum “LJOSANOTT” ✨
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Keflavík
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 16:00 |
| Tuesday | 09:00 - 16:00 |
| Wednesday | 09:00 - 16:00 |
| Thursday | 09:00 - 16:00 |
| Friday | 09:00 - 16:00 |
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when GeoSilica Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
