UMI
UMI | Wellness Studio
Yoga • Pilates • Beauty
Inspired by sea, stillness & soul
Deep rest • Inner glow • Connection
📍 By the ocean Heilsusetur
✨ Ný meðferð hjá UMI Wellness – Kobido andlitsnudd ✨
Við erum einstaklega spennt að kynna nýja meðferð hjá okkur – Kobido, hið forna japanska andlitsnudd sem hefur verið kallað „náttúrulega andlitslyftingin“.
Kobido er einstök meðferð sem sameinar djúpa slökun, örvun blóðrásar, sogæðaflæðis og vöðva andlitsins. Meðferðin hjálpar til við að draga úr bólgum, auka ljóma húðarinnar, mýkja spennu í andliti og kjálka og styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Við erum svo heppin að hafa fengið Marysiu, sem hefur sérhæft sig í Kobido nuddi og brennur fyrir þessari fallegu meðferð. Hún vinnur af mikilli nákvæmni og umhyggju og skapar upplifun sem er bæði slakandi og endurnærandi.
🌿 75 mínútna Kobido meðferð
🌿 Verð: 22.900 kr.
Til að koma til móts við þá sem eiga erfitt með að mæta yfir daginn býður Marysia einnig upp á tíma á kvöldin og um helgar eftir samkomulagi.
Ef þig langar að gefa húðinni fallegan ljóma, slaka á taugakerfinu og upplifa einstaka vellíðan þá er Kobido meðferð sem þú þarft að prófa.
Velkomin í ró, endurnýjun og náttúrulegan ljóma hjá UMI Wellness ✨ Bókanir á Noona eða umi.is
09/06/2026
Af hverju Yoga Nidra? ✨
Yoga Nidra er djúp slökunaraðferð sem hjálpar líkama og huga að endurnærast á dýpri hátt en hefðbundin hvíld.
Ávinningurinn getur verið:
• Dregur úr streitu og kvíða
• Róar taugakerfið og minnkar spennu í líkamanum
• Bætir svefn og hjálpar við svefnleysi
• Eykur einbeitingu og andlegan skýrleika
• Styður við bata og endurheimt líkamans
• Dýpkar tengingu við sjálfið og innri ró
• Getur aukið orku og vellíðan
Í Yoga Nidra þarftu ekki að gera neitt. Þú leggst niður, lokar augunum og leyfir þér einfaldlega að vera.
Stundum er það öflugasta sem við getum gert fyrir okkur sjálf – að stoppa, anda og hvíla.
08/06/2026
Kobido er hefðbundið japanskt andlitsnudd sem sameinar djúpa slökun, náttúrulega andlitslyftingu og heildræna vellíðan. Með sérhæfðri nuddtækni er unnið með andlitsvöðva, bandvef og orkubrautir líkamans til að örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Ávinningur Kobido nudds:
• Eykur ljóma og líf í húðinni
• Dregur úr fínum línum og þreytumerkjum
• Slakar á spennu í andliti, kjálka og hálsi
• Örvar blóðflæði og súrefnisflæði til húðarinnar
• Styður við náttúrulega kollagenframleiðslu
• Minnkar bólgur og bjúg
• Veitir djúpa slökun og innra jafnvægi
Heildræn upplifun
Meðferðin er innblásin af hugmyndafræði um tengingu líkama og huga þar sem slökun, núvitund og umhyggja fara saman. Hver meðferð er einstök upplifun sem hjálpar þér að endurnærast, losa um streitu og finna aftur fyrir innri ró.
Lengd: 75–90 mínútur
Marysia hefur sérhæft sig í þessari tækni og býður ykkur velkomin ✨
Einstakt að fá þennan snilling á Nesið
Þið finnið okkur á Noona appinu eða sendið okkur skilaboð til að bóka
Kvöld og helgar tímar eru í boði 🤎
08/06/2026
5 ástæður til að æfa Pilates
Pilates er frábær leið til að styrkja líkamann, bæta líkamsstöðu og auka vellíðan. Með reglulegri iðkun byggir þú upp styrk, eykur liðleika, bætir líkamsvitund og styður við bæði líkamlega og andlega heilsu.
Hér eru 5 góðar ástæður fyrir því að Pilates hefur orðið ein vinsælasta hreyfing í heimi.
Við hlökkum til að sjá ykkur í UMI Studio 🤍
05/06/2026
✨ PILATES Í JÚNÍ HJÁ UMI STUDIO ✨
Við ætlum að nýta júnímánuð til að kynna þessa frábæru þjálfun sem Pilates er og bjóðum upp á 5 opna Mat Pilates tíma út mánuðinn
Pilates er einstök æfing sem styrkir kjarnann, bætir líkamsstöðu, eykur liðleika og hjálpar líkamanum að hreyfast af meiri léttleika og jafnvægi
Til að gera þetta einfalt og skemmtilegt bjóðum við upp á 5 tíma klippikort,þannig að þú getur mætt í alla tímana eða valið þá sem henta þér best, skráning í tímana fer fram á bokun.umistudio.is (sja bio) og þar er hægt að kaupa klippikortin
Við tökum svo smá sumarhlé í júlí og hefjum Pilates af fullum krafti aftur í ágúst☀️
Hvort sem þú ert byrjandi eða hefur æft Pilates áður þá ertu hjartanlega velkomin(n) á dýnuna hjá okkur
• 5 opnir Mat Pilates tímar í júní
• Hægt að kaupa 5 tíma klippikort
• Hentar öllum getustigum
• UMI Studio – Austurströnd 1, Seltjarnarnesi
Kennari : Dansarinn, pilates og yoga kennarinn Auður Bergdís
01/06/2026
Mánudagskvöld með Auði Evu í UMI Studio ✨
Gefðu þér stund til að hægja á, anda dýpra og lenda í líkamanum.
Við byrjum kvöldið á mjúku flæði sem hjálpar líkamanum að losa um spennu, færum okkur svo inn í djúpa Yoga Nidra slökun og endum með mjúkri tónheilun (gong)sem styður við ró, jafnvægi og endurnæringu
Þetta kvöld er fyrir þig sem þarft:
• meiri ró
• betri svefn
• minni streitu
• dýpri tengingu við sjálfa/n þig
Mánudagar
Kl. 20:00
UMI Studio – Seltjarnarnesi
Komdu og stilltu taugakerfið með okkur ✨
Bókanir á bokun.umistudio.is 🤎
28/05/2026
✨ MAT PILATES Í UMI STUDIO ✨
Við erum svo spennt að segja ykkur frá fyrsta Mat Pilates tímanum okkar í UMI
Þriðjudaginn 2. júní mun Auður Bergdís leiða fyrsta Pilates tímann í UMI Studio — og við ætlum að bjóða fyrstu 15 sem skrá sig FRÍAN prufutíma ( skráning á [email protected])
Í framhaldi mun hefjast nýtt Pilates námskeið hjá okkur með tímum tvisvar í viku
Auður er pilates-, yoga- og danskennari. Hún hefur kennt hóptíma í yfir 15 ár og er spennt að kynnast öllum iðkendum UMI
Pilates tímarnir hennar leggja áherslu á:
• Sterka líkamsstöðu
• Frelsi í hreyfingu
• Vellíðan í eigin skinni
📍 UMI Studio – Austurströnd 1, Seltjarnarnesi
✨ Þriðjudagurinn 2. júní kl 17:00
🤍 Kynningartími | Frítt inn
📩 Skráning á [email protected]
26/05/2026
✨ Yoga in Polish at UMI Studio ✨
This summer, we are so happy to welcome the Polish community to UMI Studio with yoga classes guided in Polish by Marysia.
A soft and welcoming space to breathe, move, relax and connect — no matter your experience with yoga
Join us for our free introductory class this Saturday
🗓 30 May
🕚 11:00 – 12:30
📍 UMI Studio – Austurströnd 1, Seltjarnarnes
📩 send us email at [email protected] to join the class this Saturday
Come as you are.
You are warmly welcome on the mat ✨
—
POLSKI 🇵🇱
✨ Joga po polsku w UMI Studio ✨
Tego lata z radością zapraszamy polską społeczność do UMI Studio na zajęcia jogi prowadzone po polsku przez Marysię.
To spokojna i pełna ciepła przestrzeń, aby oddychać, poruszać się, odprężyć i połączyć ze sobą — niezależnie od doświadczenia z jogą
Zapraszamy na darmowe zajęcia pokazowe w tę sobotę
🗓 30 maja
🕚 11:00 – 12:30
📍 UMI Studio – Austurströnd 1, Seltjarnarnes
📩 [email protected]
Przyjdź taka, jaka jesteś.
Serdecznie zapraszamy na matę ✨
25/05/2026
Þú ert velkominn í UMI studio ✨ Yoga • Pilates • Viðburðir • 9d öndun • Sauna • Nudd • Snyrtimeðferðir • Samvera ✨
20/05/2026
Mánudagskvöld með Auði Evu í UMI Studio ✨
Gefðu þér stund til að hægja á, anda dýpra og lenda í líkamanum.
Við byrjum kvöldið á mjúku flæði sem hjálpar líkamanum að losa um spennu, færum okkur svo inn í djúpa Yoga Nidra slökun og endum með mjúkri tónheilun (gong)sem styður við ró, jafnvægi og endurnæringu 🤎
Þetta kvöld er fyrir þig sem þarft:
• meiri ró
• betri svefn
• minni streitu
• dýpri tengingu við sjálfa/n þig
Mánudagar
Kl. 20:00
UMI Studio – Seltjarnarnesi
Komdu og stilltu taugakerfið með okkur ✨
Bókanir á bokun.umistudio.is 🤎
Click here to claim your Sponsored Listing.
Website
Address
Reykjavík
170
