Hopp til innhold
Salons10
Akashicheilun

Akashicheilun

Bergen Helse/skjønnhet

Akashic skrár og heilun

27/10/2026

VELDU ÞÍNA VALKYRJU – HVAÐA SKILABOÐ BÍÐA ÞÍN?
Vinsamlegast lestu í gegnum alla færsluna ❤️

Í norrænni goðafræði eru valkyrjurnar dularfullar og máttugar verur sem tengjast hugrekki, örlögum, bardögum og vali á milli lífs og dauða.
Þær eru oft sýndar sem sterkar, sjálfstæðar stríðskonur sem ferðast yfir himininn og búa yfir krafti sem vekur bæði lotningu og forvitni.
Hér ætlum við að nálgast þær sem táknrænar birtingarmyndir ólíkra krafta sem geta hjálpað okkur að líta inn á við.
Kannski þarftu hugrekki til að taka næsta skref. Kannski ertu að endurheimta kraft þinn eftir erfiða tíma. Eða kannski er kominn tími til að sleppa tökunum og leyfa nýjum kafla að hefjast.
Leyfðu innsæinu að velja.
Skoðaðu myndina og veldu þá valkyrju sem þú laðast mest að.
Ekki velja endilega þá sem þér finnst fallegust eða sterkust. Taktu eftir þeirri sem vekur eitthvað innra með þér — forvitni, ró, kraft, hlýju eða jafnvel óútskýrða tilfinningu.
❤️
Veldu númer 1, 2, 3 eða 4 og sendu mér númerið þitt í einkaskilaboðum. Segðu mér endilega hvað það var sem dró þig að valkyrjunni þinni. Ég hef áhuga á að lesa það. ❤️
Lestu síðan skilaboð valkyrjunnar þinnar með opnum huga. Taktu til þín það sem vekur hjá þér umhugsun og leyfðu spurningunum að hjálpa þér að sjá aðstæður þínar í nýju ljósi.

24/10/2026

Smá spjall um Akashic námskeiðið sem er framundan í nóvember

20/10/2026

Elsku hjartað mitt ❤️
Vinsamlegast lestu fyrst alveg í gegnum færsluna frá mér 🥰

Veldu þann landvætt sem dregur þig að sér - hvaða skilaboð bíða þín hér?

Í íslenskri þjóðtrú eru fjórir öflugir landvættir sem standa vörð um landið okkar. Hver þeirra býr yfir sínum sérstaka krafti og táknrænni orku. Þessi skilaboð eru táknræn og innblásin af íslenskri þjóðtrú, náttúruöflunum og þeirri andlegu merkingu sem við getum fundið í landvættunum.
En hvað ef einn þeirra hefði skilaboð til þín einmitt núna?

Kyrraðu hugann og leyfðu innsæinu að ráða för.
Horfðu á myndina, finndu hvaða landvættur dregur þig sterkast að sér og veldu síðan númer hans - 1, 2, 3 eða 4.
Ekki hugsa of mikið. Stundum er það fyrsta sem vekur athygli okkar einmitt það sem við þurfum að staldra við.
Skrifaðu númerið þitt í athugasemd og segðu mér endilega hvað það var sem dró þig að þessum tiltekna landvætti. Síðan mun ég senda þér einkaskilaboð.

Kannski spegla skilaboðin einmitt eitthvað sem þú ert að upplifa í lífi þínu núna í dag.
Treystu innsæinu. Það hefur oft meira að segja en við gerum okkur grein fyrir.

12/10/2026

Það er laust 1 pláss ef einhver hefur áhuga. Námskeiðið verður haldið helgina 20. - 22. nóvember næstkomandi.

Photos from Akashicheilun's post 29/09/2026

Skilaboð dagsins til okkar frá orku dagsins 💛

23/09/2026

NÁMSKEIĐ Í AKASHIC SKRÁNUM
Langar þig að læra að opna og vinna með Akashic skrárnar?

Helgarnámskeið þar sem þú lærir skref fyrir skref að tengjast Akashic skránum
og vinna með þær á öruggan, jarðtengdan og sjálfstæðan hátt.
Við skoðum m.a. innsæi og leiðsögn, orkuvinnu, hreinsun, vernd
og hvernig Akashic vinna getur stutt persónulegan og andlegan þroska.

Hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af andlegri vinnu.

Verklegar æfingar - Heimaverkefni - Stuðningur og leiðsögn
Vegleg 360 bls. Akashic-handbók - Veglegur gjafapoki
Takmarkaður fjöldi þátttakenda

MARKMIÐIÐ
Að þú getir unnið sjálfstætt með Akashic skrárnar að námskeiði loknu.

SÍÐASTA HELGIN Í NÓVEMBER 2026 - HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Snemmskráning til 1. nóvember: 100.000 kr. . Fullt verð: 120.000 kr.
20.000 kr. staðfestingargjald tryggir þátttöku og dregst frá heildarverði.
Staðfestingargjald er ekki endurgreitt.

Langar þig að vita meira eða tryggja þér pláss?
Hafðu samband -
Stella Jórunn A. Levy - Akashic lestur - heilun - kennsla

23/09/2026

Skilaboð til þín frá alheiminum.

Lokaðu augunum og kyrraðu hugann.
Þegar þú ert tillbúin/n skaltu velja þér x1 spil.
Síðan skaltu senda mér skilaboð til að fá
bæði mynd af þínu spili og svar.
Mundu:
Ekki skrifa í komment, sendu mér skilaboð
🔅🔆🔅🔆🔅
Þetta er Oracle stokkurinn: The Inner Temple Oracle e. Rebecca Campbell

21/09/2026

Þakklæti ❤️
Kærar þakkir fyrir dásamlega helgi á Heimsljósi. Ég er svo þakklát fyrir alla þá sem höfðu áhuga á að koma að hitta mig. Takk fyrir tíma ykkar og athygli. Ég flýg heim til Bergen með hlýju í hjarta mínu. ❤️

Akashic-heilun 11/09/2026

Hlakka til að spjalla saman á Heimsljósi í Mosfellsbæ

Akashic-heilun Ég heiti Stella og starfa við Akashic-heilun og lestur Akashic skráa. Ég er fædd og uppalin á Íslandi en bý í Bergen í Noregi, þar sem ég starfa einnig sem sjú…

Opnaðu gáttina að visku sálarinnar: Akashic skrárnar 11/09/2026

Hlakka til að hitta ykkur á Heimsljósi

Opnaðu gáttina að visku sálarinnar: Akashic skrárnar Vertu velkomin/n á spennandi kynningarfyrirlestur um Akashic skrárnar (oft kallaðar bókasafn sálarinnar). Þetta er lifandi og öflugt tæki til að skilja sjálfan…

Andre Helse/skjønnhet i Bergen

Vis Alle
  • Bioline Norge

    Bioline Norge

    Midtunheia 22, Bergen 5224NESTTUN

    Hold dere oppdatert på hudpleie, få skjønnhetstips og vinn herlige produkter i konkurranser! www.bioline.no

  • Forever by Janicke

    Forever by Janicke

    Bergen 5230

    Jeg selger Aloe vera produkter og samarbeider med verdens største produsent og leverandør

  • Lira Clinical Norge

    Lira Clinical Norge

    Østre Nesttunvei 2, Bergen 5221

    Clinical skincare - utviklet for moderne hudpleie Distribuert av SMARTskin AS ✨ Be Bright. Be Beautiful.

  • Jessi’s Salong

    Jessi’s Salong

    Marken 24, Bergen 5017

    Velkommen til Jessi’s Salong! Vi holder til i Marken 24, 5017 Bergen❤️

  • venus_spejlet

    venus_spejlet

    Bergen

    Venus Spejlet er et spejl til intim-udforskelse. Det er skabt for at sætte fokus på at piger, kvi

  • Carpe Corpus klinikken

    Carpe Corpus klinikken

    Møllestykket 21, Bergen 5360

    Sliter du med vond kropp? Carpe Corpus er en klinikk for massasje og muskel terapi.

  • Kjernesunn frønæring

    Kjernesunn frønæring

    Leknesvegen 157A, Bergen

    https://rainintl.com/Hegest Frønæring fra Rain er forsket frem av leger og ernæringseksperter. He

  • PT TineF

    PT TineF

    Liavegen, Nyborg, Bergen 5132

    Personlig Trener

Varslinger

Bli den første som får vite det: Vi sender deg en e-post når Akashicheilun legger ut nyheter og kampanjer. E-postadressen din brukes ikke til noe annet formål, og du kan melde deg av når som helst.

Abonner

Vi gir deg beskjed når noe skjer i Bergen.