Grasa Kata
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmundsdóttir og þessi síða er tileinkuð nytja- og lækningajurtum og námi mínu í grasalækningum í gegnum vefsíðuna grasakonan.is
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmuhndsdóttir og hóf nám í grasalækningum haustið 2025
07/10/2026
Þessa vikuna erum við að læra um unglinga, mjög áhugavert efni. Kynþroskinn veldur því að unglingar fara seinna að sofa (seinkuð dægursveifla) og ná því oft ekki nægum svefntíma. Skjánotkun á kvöldin seinkar svo enn meira svefntíma þeirra, unglingur sem notar skjái í 4 klukkustundir yfir daginn en hættir 60 mínútum fyrir svefn er líklegri til að sofa betur en sá sem notar skjái í 2 klukkustundir en heldur áfram fram að miðnætti. Æskilegt er að unglingar hreyfi sig 30-60 mín eftir skóla og fyrir skjátíma. Mörgum unglingum skortir D vítamín sem veldur einbeitingarleysi, svefntruflunum og skapsveiflum. Allir sem búa á norðlægum slóðum þurfa að taka D vítamín yfir dimmasta tíma ársins. Tryptófanrík fæða á kvöldin (t.d. kalkúnn, mjólkurvörur, egg, fræ) styður myndun serótóníns og melatóníns — mikilvægt vegna melatónínskorts sem stafar af skjánotkun á kvöldin.
Árangursríkasta einstaka inngripið í skjávenjum er að hætta skjánotkun að lágmarki 60 mínútum fyrir svefn, ásamt því að fjarlægja tæki úr svefnherberginu. Náttúrulegt ljós á morgnana flýtir dægurtaktinum. Hreyfing eftir skóla áður en kvöldskjátími hefst dregur úr dópamínhvöt í skjái og auðveldar að sofna.
Einfalt og gott, dökkt súkkulaði og valhnetur 🥰
Þessa viku held ég áfram að læra um jurtir sem styðja við börn og unglinga. Vissuð þið að reglubundin neysla á hvítlauk í fæðu (1 til 2 fersk rif daglega, smátt söxuð eða marin og bætt í eldaðan mat) er aðgengilegasta formið og það sem þolist best fyrir aldurshópinn 5-12 ára og veitir stöðugan, vægan örverueyðandi- og ónæmisstuðning. Ferskur hvítlaukur borðaður hrár (í salatsósum, hrærður út í jógúrt) gefur meira allisín en eldaður hvítlaukur.
30/09/2026
Fræðslufyrirlestur 1. október kl. 20 | Hofi Akureyri
BETRI NÆRING - BETRA LÍF🪴
Öll velkomin í fræðslu hjá Kolbrúnu grasalækni um náttúrulegar lausnir að betra janfvægi í meltingu og örvruflóru.
Fyrirlesturinn Betri næring - Betra líf er byggður á bókinni sem Kolbrún gaf út um meltingu og örveruflóruna og hvaða vörur og gerlar frá Jurtaapótekinu og Lyfju styðja við það.
Kolbrún leggur áherslu á einfaldleika, gæði og áreiðanleika þar sem hver vara er hugsuð sem markviss lausn við ákveðnum þörfum, hvort sem það tengist svefni, streitu, meltingu eða almennri vellíðan.
Léttar, grænar og vænar veitingar í boði
Frítt er á fyrirlesturinn sem fer fram fimmtudaginn 1. október í salnum Hömrum í Hofi á Akureyri. Mikilvægt er að skrá sig á fræðslufyrirlesturinn því það er takmarkað sætapláss. Viðburðurinn tekur um 2 tíma.
Þessa vikuna er ég að fræðast um hvaða jurtir henta börnum og unglingum sem stuðningur í veikindum. Börn þurfa verulega minni skammta af jurtablöndum en fullorðnir. Líkami barna er viðkvæmari en líkami fullorðinna. Líffærakerfi — þar á meðal lifur, nýru og blóð-heila-hemill — eru ekki fullþroskuð fyrr en á unglingsárum eða síðar. Þetta þroskasamhengi krefst varkárrar nálgunar: mildari jurtir, minni skammtar, einfaldari formúlur og vandlegt eftirlit eftir hvern skammt.
Camilla er ein mest rannsakaða jurtin og nýtist við mörgum kvillum. Róandi sefandi; krampastillandi; vindeyðandi; bólgueyðandi; vægt verkjastillandi; sáragræðandi.
Notkun fyrir börn: Ein mest notaða barnajurt á heimsvísu. Má t.d. nota við ungbarnakveisu, óþægindi við tanntöku, krampar í meltingarvegi, pirringur, eirðarleysi og stuðningur við hita.
Seyði: 1 til 2 g þurrkaðir blómkollar í hvern bolla af heitu vatni, látið draga í 10 mínútur undir loki, 2 til 3 sinnum á dag — skammtið eftir aldri eða þyngd.
16/09/2026
Þetta er í handfyllinni af íslenskum aðalbláberjum, samkvæmt ÍSGEM, íslenska matvælagagnagrunninum frá Matís:
44 kkal
0,9 g prótein
0,2 g fita
7,3 g kolvetni, allt sykurtegundir
4,6 g trefjaefni
14,3 mg C-vítamín
1,85 mg E-vítamín
93 mg kalíum
Trefjarnar eru það sem stendur upp úr. Fjögur komma s*x grömm hljóma ekki mikið fyrr en þú setur þau í samhengi: það er tæpur fimmtungur af öllum trefjunum sem þú átt að fá yfir daginn, úr einni handfylli af berjum.
Vítamínin eru hófstilltari en umtalið gefur til kynna. C-vítamínið dekkar um 15% af deginum fyrir konur á aldrinum 25 til 50 ára og E-vítamínið um 19%.
Síðustu vikuna hef ég verið að fræðast um meðgöngu og brjóstagjöf og hvernig næringar- og jurtastuðningur nýtist best.
Varlega þarf að fara í notkun jurta á þessu viðkvæma tímabili þar sem virkni jurta getur verið of kröftug fyrir lítil kríli. Nokkrar jurtir eru þó vel rannsakaðar og taldar skaðlausar á meðgöngu og við brjóstagjöf.
Besta mjólkuraukandi aðferðin er að leggja barnið oft á brjóst og passa að foreldrar hvílist vel 🥰
Brenninetla (Urtica dioica) er fjölhæf lækningar- og nytjajurt sem er rík af steinefnum eins og járni Helstu notkunarsvið jurtate og fæðubótarefni: Seyði eða te úr þurrkuðum eða nýjum blöðum er drukkið til að styðja við almenna vellíðan og fá í sig steinefni. Þvagræsivirkni: Jurtin hefur löngum verið nýtt sem náttúrulegt þvagræsilyf og til að styðja við nýru og þvagvegakerfi (svo sem gegn blöðrubólgu). Bólgueyðing og gigt: Hún er oft notuð til að lina einkenni gigtar og draga úr bólgum. Matreiðsla: Ung blöð eru nýtt í súpur, te, mauk eða sem spínat í matargerð eftir að búið er að hita þau eða bleyta upp í þeim svo brennihárunum sé eytt.
Brenninetla er jurt sem má nota fyrir getnað, á meðgöngu og á meðan á brjóstagjöf stendur en hún er einstaklega næringarrík.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Svalbarð
Dalvík
621
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when Grasa Kata posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
