Flott Fax

Flott Fax

Share

Flott Fax er í eigu Flott Fax ehf. Við bjóðum upp á skiptingu á faxi og rakstur! Flott Fax er einnig með hestavörur til sölu á mjög góðu verði.

Photos from Flott Fax's post 04/09/2026

SELDUR

Bassi 💖 – Efnilegur keppnishestur

🐴 7 vetra gamall, frábær reiðhestur og algjör eðalvagn sem er stútfullur af framtíðarmöguleikum í keppni.

✨ Alveg til fyrirmyndar bæði einn og í samreið, viljugur en ljúfur, léttur í taumi og hlustar einstaklega vel á knapann.

🎯 Kann allar helstu fimiæfingar og sýnir fína takta og mýkt á ferð.

🏆 Fullkominn valkostur fyrir metnaðarfullt barn eða ungling sem vill ná árangri á keppnisbrautinni.

Sanngjarnt verð

Frekari upplýsingar í skilaboðum (PM).
‼️ Athugið: Ég get því miður ekki sent PM, vinsamlegast sendið skilaboð beint á mig!

Photos from Flott Fax's post 26/06/2026

✨ FRAMTÍÐAR GÆÐINGURINN ÞINN? BASSI FRÁ UTANVERÐUNESI ER TIL SÖLU! ✨

Ertu að leita að hesti sem hefur allt?
Útlit, frábæra hæfileika og stórt hjarta? 🐴❤️

Bassi frá Utanverðunesi (IS2018157114) er einstaklega lofandi og glæsilegur 8 vetra geldingur sem er tilbúinn í næstu skref með nýjum eiganda. Hann er hestur sem getur hentað í nánast hvað sem er – hvort sem það er beint í keppnisbrautina eða sem algjör lúxus útreiðarhestur!

🌟
Frábær ætt: Faðir er Oddi frá Hafsteinsstöðum og móðir er Gríma frá Hóli. 🧬

Hreingengur og jafn: Hann er hreinn á öllum gangi með einstaklega þægilegt og gott tölt og brokk.

STÖKKIÐ ER MEGA! 🚀 Það þarf varla að segja meira, stökkið er í algjörum sérflokki og það er hreinasta upplifun að sitja það.

Fullkominn í útreiðar og ferðir: Bassi er einstaklega þægilegur og skemmtilegur útreiðarhestur. Hann hefur þegar farið í hestaferð og stóð sig eins og hetja. Hann teymist eins og draumur og það er sömuleiðis frábært að teyma á honum.

Bassi er gæðingur sem vill vinna með knapanum sínum. Vegna þess hve næmur hann er, hentar hann ekki algjörum byrjendum eða óöruggum knapanum. Hann þarfnast knapa sem býður upp á skýra forystu og gagnkvæmt traust – en sá sem vinnur traust Bassa fær dásamlegan vin og vinnufélaga til æviloka!

🏆 Keppnisefni: Fyrir þá sem vilja spreyta sig í keppni þá lúrir mikill möguleiki í Bassa. Hann á klárlega heima í brautinni ef áhugi er fyrir hendi!

Hafðu samband í einkaskilaboðum (pm) fyrir nánari upplýsingar, verð og til að koma og prófa þennan mola! 💌👇

23/06/2026

Er með ungan en efnilegan og framtíðar barna hest til sölu!!
IS2022153524

Smári er 4v geldingur sem gæti hentað unglingi jafnvel fyrir fyrsta hest! Hann hentar vel í hestaferðirnar og jafnvel í keppni
Hann er rólegur og yfirvegaður, hefur hingað til varla verið hræddur við neitt! Yndislegur í umgengni. Smári elskar klapp og knús, stendur kyrr á meðan farið er á bak.

Hann er á milliveg varðandi vilja, hann fer áfram þegar beðið er um það en er aldrei á móti því að hægja á. Sjálf hef ég alltaf notað hljóð og sæti og hann hlustar vel á það!! Er með fremur gamalt vídeó af honum í reið! Hann er góður einn og í samreið og hlustar alltaf á knapann sinn! Hefur farið í eina litla og stutta hestaferð og gekk það æðislega!! Hann flugteymist og hægt að teyma á honum en það hefur bara verið gert 2x.

Hann er ekki búin í gangsetningu en töltið kemur reglulega hreint en þó ekki alltaf! Getur verið bundinn en held að það myndi reddast á stuttum tíma miðað við hve fljótt hann lærir!
Smári þekkir allar helstu fimiæfingar en er ekki fullkominn í þeim.
Gæti vel hentað unglingi sem vill þjálfa eigin hest upp!!

Ef fyrsta hest er um að ræða er ég ekki á móti því að láta allt sem þarf fyrir fyrsta hest (það er þó dýrara)!
Eftirtalið hér;
Hnakkur, ístaðsólar, ístöð og gjörð.
Beisli = höfuðleður, mél, nasamúll og taumur
Annað: hlífar (230g), stallmúll+taumur x 2, ábreiða og kambar geta fylgt.

Frekari upplýsingar veittar í skilaboðum, endilega sendið á mig!!

02/06/2026

Óskum eftir ótömdum tryppum á tamningar aldri (helst 4-5v)
Bandvön er eina sem við erum hörð með!!

Efnileg!!
Gæf

Stóðhestar eru líka hátt á listanum

Setið IS-numer í comment

Fyrirfram þakkir!! 🥰

14/05/2026

🐴 Tek hross í þjálfun 🐴
Tek að mér hross í þjálfun:
✨ Frumtamningu
✨ Gangsetningu
✨ Grunnvinnu og áframhaldandi uppbyggingu
✨ Undirbúning fyrir keppni eða frekari reið

Ég hef mikla og fjölbreytta reynslu af þjálfun hrossa á mismunandi stigum, bæði keppnishross, reiðhross og tryppi. Lögð er rík áhersla á rétta uppbyggingu frá grunni, skýrar ábendingar, sjálfberandi hest, markvissa framþróun og öryggi.

Vinn eftir faglegum vinnubrögðum þar sem jafnvægi, mýkt og virkni eru í forgangi, með einstaklingsmiðaðri þjálfun að hverju hrossi.

Laust fyrir nokkur hross frá 15 maí!

📍 Staðsett í Spretti í Kópavogi

📩 Sendu skilaboð fyrir nánari upplýsingar eða til að ræða þitt hross

Photos from Flott Fax's post 06/02/2026

Flott fax kynnir glænýjar, algjörlega ónotaðar (en með miða) hestavörur til sölu.

Magic brush kambar 3stk: 3.500 kr.
Ennisband/Ennisól (bæði með svörtum og hvítum steinum): 3.500 kr.
Stallmúll: 3.000 kr.
Taumur 3m (svartur): 1.000 kr.

Photos from Flott Fax's post 29/11/2025

Flott fax kynnir glænýjar, algjörlega ónotaðar (en með miða) hestavörur til sölu.

Magic brush kambar 3stk: 3.500 kr.
Ennisband/Ennisól (bæði með svörtum og silfruðum steinum): 3.500 kr.
Stallmúll: 3.000 kr.
Taumur 3m (svartur): 1.000 kr.

Photos from Flott Fax's post 14/11/2025

Flott fax kynnir glænýjar hestavörur til sölu.

Magic brush kambar 3stk: 3.500 kr.
Ennisband/Ennisól (bæði með svörtum og silfruðum steinum): 3.500 kr.
Stallmúll: 3.000 kr.
Taumur 3m (svartur): 1.000 kr.

Photos from Flott Fax's post 27/04/2025

Flott Fax er með skiptingar á faxi á höfuðborgarsvæðinu!

Verð:
3000kr fyrir venjulega skiptingu
4000kr fyrir skrautlega skiptingu

sendið pm ef þið viljið skiptingu!

Photos from Flott Fax's post 18/04/2025

Nýlegar skiptingar!

Skipti á höfuðborgarsvæðinu! hægt er að senda pm 😊

Want your business to be the top-listed Hair Salon in Hafnarfjörður?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Website

Address


Sörlaskeið
Hafnarfjörður

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flott Fax posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Hafnarfjörður.