Hárakademían
Hárakademían er framúrskarandi hársnyrtiskóli sem undirbýr nemendur til að fara í gegnum sveinspróf í greininni. Hárakademían framúrskarandi skóli.
Hárakademían býður upp á styttingu á námi í hársnyrtiiðn. Hárakademían er framúrskarandi einkarekinn hársnyrtiskóli sem undirbýr nemendur til sveinsprófs í greininni. Skólinn byrjaði veturinn 2014. Hársnyrtiiðn
Hársnyrtiiðn er þjónustustarf. Starfið er mjög krefjandi og er útfært í nánum tengslum við viðskiptavininn. Ráðgjöf um persónulegt útlit er stór hluti starfsins og krefst það listræns innsæis fagmannsins. Hársnyrtir þarf að búa yfir þekkingu á herra- og dömuformum, litun, liðun og hafa til að bera þekkingu á tísku og tíðaranda hverju sinni svo handverkið njóti sín sem best. Hársnyrtiiðn er samspil listrænnar sköpunar, faglegrar þekkingar, sem aflað er með námi í Hárakademíunni, og starfsþjálfunar á vinnustað. Aðstaðan
Hárakademían er búin öllum glæsilegustu tækjum og búnaði sem völ er á. Kennslustofa fyrir bóklegt nám og stórt opið rými sem heldur utan um verklega kennslu sem líkir eftir hársnyrtistofu eins og þær gerast í dag. Hárakademían verður einnig notuð til námskeiða fyrir fagfólk í stéttinni.
Í Hárakademíunni starfa faglærðir meistarar og sveinar sem hafa margra ára reynslu í faginu. Þeir hafa allir mikla þekkingu og reynslu erlendis frá t.a.m Toni&Guy, AVEDA og Vidal sasson. Hárakademían mun einnig fá fjölda af gesta leiðbeinendum til kennslu. Fleiri upplýsingar er hægt að finna á http://harakademian.is
02/05/2026
Nemendur Hárakademíunnar 2026
11/03/2026
Tímapantanir í síma 571-2279
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
Kringlan 7, Hús Verslunarinnar
Reykjavík
103
Opening Hours
| Monday | 08:30 - 16:30 |
| Tuesday | 08:30 - 16:30 |
| Wednesday | 08:30 - 16:30 |
| Thursday | 08:30 - 16:30 |
| Friday | 08:30 - 16:30 |
